Tjaldsvæði
Um tjaldsvæðið
Tjaldsvæðið á Úlfljótsvatni er eitt af þeim stærstu á landinu og geta allt að 5.000 gestir dvalið á tjaldsvæðinu í einu. Tjaldsvæðinu er skipt niður í þrjátíu svæði sem hægt er að sjá á korti. Aðgengi að rafmagni og hreinlætisaðstöðu er gott um allt svæðið. Mörg tjaldsvæðin eru alveg við vatnið en annars er ekki nema örstuttur spölur að því. Allar helstu upplýsingar um svæðið má sjá á korti.
Hundar leyfilegir

Fjölbreytt dagskrá um helgar

Grillaðstaða

Rafmagn
Sjoppa
Veiði í Úlfljótsvatni
Hundar leyfilegir

Fótboltavöllur

Folf

Leikvellir

Vatnasafarí

Þrautabraut
Rafrænn kynningarleikur um tjaldsvæðið
Hundar leyfilegir
Hvernig skal
Bóka pláss á tjaldsvæðinu
Við biðjum alla gesti um að bóka stæði á
parka.is áður en þeir dvelja á tjaldstæðinu.
Langtímastæði
Geymdu tjaldið, hjólhýsið eða fellihýsið á tjaldsvæðinu til lengri tíma á sumrin. Frá 1 til 3 mánuðum, tryggir þú þér ákveðið svæði fyrir fast verð.
Opnunartímar
Tjaldsvæðið er opið með allri þjónustu* frá 1. júní til 31. ágúst.
*Öll þjónusta:
– Allar tjaldflatir eru opnar
– Um helgar er í boði fjölbreytt dagskrá
– Þjónustumiðstöðin og búðin er opin á opnunartímum
– Öll klósett og sturturými á tjaldsvæðinu er opin
Frá 1.september til 31. maí er tjaldsvæðið opið með takmarkaðri þjónustu*
*Takmörkuð þjónusta:
– Klósettin og sturturýmið við þjónustumiðstöðina eru aðeins opin
– Þjónustumiðstöðin (sjoppan) er lokuð
– Aðeins hluti tjaldflata er opin (hægt að sjá hjá parka.is hvaða tjaldflatir eru opnar)
– Þegar byrjar að snjóa er aðeins þær flatir opnar sem merktar eru hjá parka.is sem ,,winter camping”
Verðskrá
Fullorðnir | 1,800 kr.
Ungmenni (13-17 ára)| 700 kr.
Börn undir 12 ára | ókeypis
Öryrkjar/Eldri borgarar | 1,100 kr.
Skátar fá 50% afslátt á öllum aldri
*Innifalið í gistiverði er afnot af allri aðstöðu á tjaldsvæði og veiðileyfi
Electricity | 1,000 kr. p/ overnight
Helgardagskrá
Helgardagskráin er í gangi á sumrin þegar tjaldsvæðið er opið.
10:00 to 12:00 | Bátar við vatnið | 500 kr.
Veiði í Úlfljótsvatni
Allir veiðimenn þurfa að tilkynna sig áður en farið er til veiða í Þjónustumiðstöðinni. Skráningarbók er í salnum þar og er alltaf opið inn.
Skráning veiðimanna á netinu fer fram hér
Skrá þarf allan afla að lokinni veiði í veiðibók í Þjónustuðmiðstöðinni eða með því að smella hér fyrir rafræna skráningu. Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið.
Nánari upplýsingar um veiði í Úlfljótsvatni má finna hér.
Svæði 2: Svæði 2 er ekki inní Veiðikortinu en hægt er að kaupa stök veiðileyfi í Þjónustumiðstöð staðarins – 1,500kr.
Svæði 1 Svæði 3 Svæði 4 Svæði 5