Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 4
Undirbúningur fyrir sumarið á Úlfljótsvatni er í fullum gangi og leitum við nú að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að koma og rétt hjálparhönd á vinnuhelgum hjá okkur.
Vinnuhelgi fer fram næstkomandi helgi 11.-12. maí
Við leitum að 5-10 sjálfboðaliðum sem eru 18 ára eða eldri (rekkaskátar geta komið en verða að vera í fylgd með fullorðnum).
- Verkefni sem þarf að klára snúa að viðhaldi bæði innan og utan dyra, t.d. málningarvinna.
- Vinnuhelgin verður í umsjá viðhaldsteymis ÚSÚ.
- Sjálfboðaliðar geta tekið þátt alla helgina eða annan daginn – velkomið er að mæta á föstudegi og njóta á ÚSÚ kvöldið áður. Á laugardagskvöldi er frjáls tími þar sem hægt er að skapa skemmtilega kvöldstemmingu á svæðinu.
- Gisting og matur er í boði ÚSÚ. Sjálfboðaliðar þurfa að koma sér sjálfir á svæðið.
- Reynslu er ekki krafist en kostur er ef sjálfboðaliðar hafa einhverja þekkingu á almennu viðhaldi, málingavinnu eða öðru. Við viljum þó allra helst sjá skátaandann, samvinnu og gleði!
- Sjálfboðaliðar sem taka þátt báða dagana munu fá færnimerkið, LAGA.
Ef þú hefur áhuga getur þú skráð þig á Sportabler!