Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 3

Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 3

Undirbúningur fyrir sumarið á Úlfljótsvatni er í fullum gangi og leitum við nú að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að koma og rétt hjálparhönd á vinnuhelgum hjá okkur.

Vinnuhelgi fer fram næstkomandi helgi 4.-5. maí  og helgina 11.-12. maí

 

Við leitum að 5-10 sjálfboðaliðum sem eru 18 ára eða eldri (rekkaskátar geta komið en verða að vera í fylgd með fullorðnum).

  • Verkefni sem þarf að klára snúa að viðhaldi bæði innan og utan dyra, t.d. málningarvinna.
  • Vinnuhelgin verður í umsjá viðhaldsteymis ÚSÚ.
  • Sjálfboðaliðar geta tekið þátt alla helgina eða annan daginn – velkomið er að mæta á föstudegi og njóta á ÚSÚ kvöldið áður. Á laugardagskvöldi er frjáls tími þar sem hægt er að skapa skemmtilega kvöldstemmingu á svæðinu.
  • Gisting og matur er í boði ÚSÚ. Sjálfboðaliðar þurfa að koma sér sjálfir á svæðið.
  • Reynslu er ekki krafist en kostur er ef sjálfboðaliðar hafa einhverja þekkingu á almennu viðhaldi, málingavinnu eða öðru. Við viljum þó allra helst sjá skátaandann, samvinnu og gleði!
  • Sjálfboðaliðar sem taka þátt báða dagana munu fá færnimerkið, LAGA.

Ef þú hefur áhuga getur þú skráð þig á Sportabler!
Skráning lokar 30. apríl