Söngtextar

Varðeldur – Verslunarmannahelgi 2026 – sunnudagur
Campfire – Verslunarmannahelgi 2026 – Sunday

Keli kátur karl

Ég heiti Keli kátur karl
og kraftajötunn er
og þegar ég fer út
hrökkva’ allir í kút
ég heiti Keli kátur karl
tra lalalalala.

Undir þínum áhrifum

Ég er ofurseldur þér og uni vel.   
Það er annað finnst mér allt mitt hugarþel.     
Sem ég horfi á þig sofa finn ég að   
það er brotið nú í lífi mínu blað.
                
Ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér,   
svo ég segi það hreint alveg eins og er.     
Og ég hugsa alla daga til þín heitt.
Alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt.
 
Það er varla nokkur heppnari en ég.    
Þessi tilfinning er ævintýraleg.      
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
                
Þú ert náttúrunnar undurfagra smíð,
verður hörpu minnar strengur alla tíð.     
Það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú.   
Og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú.  
 
Ooooooooooooo    
Mmmmmmmmmmmmm      
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
 
Ég mun elska þig allt fram á hinstu stund.
Uns ég held um síð á feðra minna fund.     
En að líkum hef ég tímann fyrir mér    
og ég hlakka til að eyða honum með þér.
 
Það er varla nokkur heppnari en ég.     
Þessi tilfinning er ævintýraleg.      
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Ég er –      undir þínum áhrifum í dag.
og verð alltaf, enginn vafi er um það.
 
        enginn         vafi er um það.
         – Ohhhh         oooohhh ohhh.
 

Ömmulagið

Amma mín og amma þín
tjalda uppi á fjalli.
Kveikja eld og kyrja lag
með prímusinn í dalli.

Viðlag:
Talandi um heyvél, heyvél, heyvél, heyvél,
bagga og heybindivél. Ooohhh.
Talandi um sveitamenningu
í skátunum skemmti ég mér

Ljósálfur og ylfingur
sitja’í kringum eldinn.
Skinnið flá af ísbirni
og skríða undir feldinn.

Viðlag

Dróttskáti og dróttskáti
skríða oní poka,
neðar saman mjaka sér
og rennilásnum loka.

Viðlag

Svannastúlkur seint um kvöld
sestar inní tjöldin.
Rekkaskátarómantík,
ástin tekur völdin.

Viðlag

 

Lífið er yndislegt

                        
Á þessu ferðalagi fylgjumst við að.  
Við eigum örlítinn vonarneista fyrir hvort annað.
Í ljósu mánaskini vel ég mér stund og segi:
Ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig.
Ég væri ekkert án þín, myrkrið hverfur því að…
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Blikandi stjörnur skína himninum á.  
Hún svarar, ég trúi varla því sem augu mín sjá  
og segir ég gef þér hjarta mitt þá skilyrðislaust
Ég veit að þú myndir klífa hæstu hæðir fyrir mig  
Ég væri ekkert án þín, myrkrið hverfur því að…
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.     
 
Nóttin hún færist nær,
hér við eigum að vera.
núna ekkert okkur stöðvað fær
undir stjörnusalnum, inní herjólfsdalnum.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.     
 
Ó stælti skáti

Ó, stælti skáti,
hví syngur þú Cum ba yah?
Er það ekki úrelt?
Ó, súper skáti,
við förum á Úlfljótsvatn
og leikum okkur saman
 
Syngjum saman skátasöngva,
kveikjum varðeld og hitum sykurpúða   
af því að…
..að vera skáti það rokkar feitt, GING GANG
og gúllí gúllí er það sem ég trúi á.
Ég missi vitið ef án þín er,
ó skáta-andi.
Vertu ávallt inní mér!
 
Við hnýtum hnúta
og saman við reisum tjöld,
gerum síðan tjaldbúð.
Við vinnum góðverk
og slöppum aldrei af,  
hjálpum gömlum konum
 
Syngjum saman skátasöngva,
kveikjum varðeld og hitum sykurpúða   
af því að…
..að vera skáti það rokkar feitt, GING GANG
og gúllí gúllí er það sem ég trúi á.
Ég missi vitið ef án þín er,
ó skáta-andi.
Vertu ávallt inní mér!
 
Ó, Baden-Powell,
ég verð að þakka þér  
fyrir skátastarfið.
Minningar birtast
er hugsa ég til þín  
aldrei mun þér gleyma
 
Syngjum saman skátasöngva,
kveikjum varðeld og hitum sykurpúða   
af því að…
..að vera skáti það rokkar feitt, GING GANG
og gúllí gúllí er það sem ég trúi á.
Ég missi vitið ef án þín er,
ó skáta-andi.
Vertu ávallt inní mér!

Fallegur dagur
                    
Veit ekki hvað vakti mig,
vil liggja um stund.      
Togar í mig tær birtan,      
lýsir upp mína lund.      
 
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.   
                
Íslenskt sumar og sólin,      
syngja þér sitt lag.      
Þú gengur glöð út í hitann,      
inn í draumbláan dag.      
 
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.     
 
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.   
 
Mávahvítt ský dormar dofið.
Inn í draum hringsins er það ofið   
Hreyfist vart úr   stað.
Konurnar blómstra brosandi sælar.
Sumarkjólar, háir hælar.
Kvöldið vill komast að.   
 
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.     
 
Þessi fallegi dagur.
Þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.     
Aaa aaa aaa aaa.   
 
Þýtur í laufi
 
Þýtur í laufi bálið brennur.
Blærinn hvíslar: “Sofðu rótt.”
Hljóður í hafi röðull rennur,
roðnar og býður góða nótt.
 
Vaka þá ennþá vinir saman
varðeldi hjá í fögrum dal.     
Lífið er söngur, glaumur gaman.
Gleðin, hún býr í fjallasal.   
 
Undraland / Wonderland
 
Undraland við Úlfljótsvatnið blátt,
enginn gleymir þínum töframátt.
Inn við eyjar, út við sund
öldur hjala um æskudrauma grund.
 
Loftið fyllist ljúfum unaðsóm
lækir falla og léttum kveða róm.   
Engum gleymist undranátt    
við Úlfljótsvatnið blátt.
 
Wonderland by Úlfljótsvatn the blue,
unforgettable to me and you.
Waves are whispering by the shore,
echoing my dreams of long before.
 
Streams are singing, swaying through the ground,
the air is filled with sweet and subtle sound.
Every nights a dream come true
by Úlfljótsvatn the blue.