SUMARBÚÐIR

Eftirminnilegt sumar minninga og áskorana

Markmið sumarbúða skáta er að börnin komist í snertingu við náttúruna, kynnist spennandi útilífsstarfi skátahreyfingarinnar, eignist félaga úr fjölbreyttum hópi og njóti sín sem einstaklingar.

 SKRÁNING ER OPIN

Aldur

Sumarbúðirnar eru ætlaðar börnum á aldrinum:
9-11 ára
12-14 ára 

Verð

3 daga sumarbúðir: 45.300 kr.
4 daga sumarbúðir: 60.400 kr.
5 daga sumarbúðir: 74.500 kr.
4 daga útivistarnámskeið: 45.900 kr.

Innifalið í verði er rúta, gisting, 
matur og öll dagskrá. 
Systkinaafsláttur er 10%. 

Tímabil

Sumarbúðir 2025
Vika 1:
 9.-13. júní (4 dagar) 9-11 ára 
Vika 2:  16.-20. júní (5 dagar) 9-11 ára
Vika 3: 23.-27. júní (5 dagar) 12-14 ára 
Vika 4: 30. júní-4. júlí (5 dagar) 9-11 ára
Vika 5: 7.-11. júlí (5 dagar) 9-11 ára
Vika 6: 22.-24. júlí (3 dagar) 9-11 ára
Vika 7: 12.-15. ágúst (4 dagar) 9-11 ára

Útivistarnámskeið (í tjaldi)
Námskeið 1: 
14.-17. júlí (4 dagar) 12-14 ára
Námskeið 2: 5.-8. ágúst (4 dagar) 12-14 ára

Um sumarbúðirnar

Það er líf og fjör að mæta í sumarbúðir og kynnast nýjum krökkum, náttúrunni og fara í spennandi dagskrá. Meðal dagskrárliða sem boðið er upp á er klifur, bátar, bogfimi, hópeflisleikir, vatnasafarí, gönguferðir, kvöldvökur og margt fleira! 

Aðstaða til útivistar gerist vart betri, fjöldi leiktækja og þrautabrauta, stærsti klifur- og sigturn landsins og margar skemmtilegar gönguleiðir. Í sumarbúðunum takast allir á við krefjandi verkefni í öruggu umhverfi.

Starfsmennirnir eru stoltir af því að bjóða upp á metnaðarfulla dagskrá í sumarbúðunum. Sumarbúðirnar eru reknar af skátahreyfingunni og eru gildi hennar höfð til hliðsjónar í öllu starfi. 

Bókunarskilmálar fyrir sumarbúðir og útivistarnámskeið.