Tjaldsvæði
Um tjaldsvæðið
Tjaldsvæðið á Úlfljótsvatni er eitt af þeim stærstu á landinu og geta allt að 5.000 gestir dvalið á tjaldsvæðinu í einu. Tjaldsvæðinu er skipt niður í þrjátíu svæði sem hægt er að sjá á korti. Aðgengi að rafmagni og hreinlætisaðstöðu er gott um allt svæðið. Mörg tjaldsvæðin eru alveg við vatnið en annars er ekki nema örstuttur spölur að því. Allar helstu upplýsingar um svæðið má sjá á korti.
Hundar leyfilegir

Fjölbreytt dagskrá um helgar

Grillaðstaða

Rafmagn
Sjoppa
Veiði í Úlfljótsvatni
Hundar leyfilegir

Fótboltavöllur

Folf

Leikvellir

Vatnasafarí

Þrautabraut
Rafrænn kynningarleikur um tjaldsvæðið
Hundar leyfilegir
Hvernig skal
Bóka pláss á tjaldsvæðinu
Við biðjum alla gesti um að bóka stæði á
parka.is áður en þeir dvelja á tjaldstæðinu.
Langtímastæði
Geymdu tjaldið, hjólhýsið eða fellihýsið á tjaldsvæðinu til lengri tíma á sumrin. Frá 1 til 3 mánuðum, tryggir þú þér ákveðið svæði fyrir fast verð.
Opnunartímar
Tjaldsvæðið er lokað á veturna. Hægt er að veita undanþágur ef óskað er eftir því.
Verðskrá
Fullorðnir | 1,650 kr.
Ungmenni (13-17 ára)| 700 kr.
Börn undir 12 ára | ókeypis
Öryrkjar/Eldri borgarar | 1,100 kr.
Skátar fá 50% afslátt á öllum aldri
*Innifalið í gistiverði er afnot af allri aðstöðu á tjaldsvæði og veiðileyfi
Electricity | 1,000 kr. p/ overnight
Helgardagskrá
Helgardagskráin er í gangi á sumrin þegar tjaldsvæðið er opið.
10:00 | Bátar við vatnið | 500 kr.
Veiði í Úlfljótsvatni
Allir veiðimenn þurfa að tilkynna sig áður en farið er til veiða í Þjónustumiðstöðinni. Skráningarbók er í salnum þar og er alltaf opið inn.
Skráning veiðimanna á netinu fer fram hér
Skrá þarf allan afla að lokinni veiði í veiðibók í Þjónustuðmiðstöðinni eða með því að smella hér fyrir rafræna skráningu. Snyrtileg umgengni er skilyrði og bannað er að skilja eftir rusl við vatnið.
Svæði 2: Svæði 2 er ekki inní Veiðikortinu 2019 en hægt er að kaupa stök veiðileyfi í Þjónustumiðstöð staðarins.
Svæði 1 Svæði 3 Svæði 4 Svæði 5